Kristján Jónsson

Kristján Jónsson

Háyfirdómari og Íslandsráðherra



Kristján Jónsson,  1852-1926, sýslumaður, háyfirdomari, alþingismaður (KristjánJónsson  og KristjánJónsson2) og Íslandsráðherra (1911-1912),  bankastjóri Íslandsbanka (1912-1914) fæddur á Gautlöndum við Mývatn, sonur Jóns Sigurðssonar alþingismanns (1828 - 1889 JónSigurðssonÁGautlöndum), bróðir Péturs atvinnumálaráðherra (1858 - 1922 PéturJónsson). Lauk stúdentsprófi í Latínuskólanum í Reykjavík og lærði lögfræði í Kaupmannahöfn. Sem dómari var hann talinn vera svo réttlátur að starfsbræður hans kölluðu hann Aristides. Hann var beðinn af konungi að taka við ráðherraembætti, en honum vikið  úr Sjálfstæðisflokknum skömmu eftir að taka að sér embættið. Þurfti Kristján að fást við vantraust flokksbræðra sinna og sagði af sér ári seinna.  Þótt hann hafi ekki verið langlífur í ráðherraembættinu stóð stjórnmálaferill hans í rétta tvo áratugi og er hann talinn vera í hópi fremsta og mest metnu manna á Íslandi.

Kristján var tengdafaðir Sigurðar Eggerz og afi Péturs Eggerz  og Hilmars Foss .